Vatnsveita Mosfellsbæjar og vatnsöflun

miðvikudagur, 31. október 2018 18:30-19:45, Hotel Borgarnes Egilsgata 16 310 Borgarnes
Fundur var haldinn í Rkl. Borgarness á hefðbundnum stað og tíma. Þetta var fundur númer 3181 frá upphafi og sá 10. á starfsárinu. Mættir voru 7 félagar auk gesta. Gestir á fundi voru: Laufey og Réne Frost. Undir liðnum kveðjur lögðu Gísli Karel og Kristján í Ingólfssjóð. Forseti fór yfir dagskrá Nóvembermánaðar. 
Eftir málsverðarhlé var flutt erindi kvöldsins Vatnsveita Mosfellsbæjar og vatnsöflun. Gísli Karel Halldórsson skýrði framtíðarmöguleika Mosfellsbæjar til vatnstöku en í dag er verið að kaupa vatn af Veitum fyrir um 46m króna á ári. Með framkvæmd upp á um 442m króna sem borgaði sig upp á um 30 árum get mosfellingar verið sjálfum sér nógir með vatn.
Farið var með fjórpróf og fundi slitið um kl. 20.
Þannig ritað
Kristján Rafn, ritari