Myndin er frá síðustu atvinnusýningu sem Rótarýklúbbur Borgarness hélt.
Málstofa. "Matvælalandið Ísland-loftlagsmál og kolefnisspor. Kl. 10:30-12:30.
Frummælendur: Guðmundur I. Guðbrandsson umhverfisráðherra, Haraldur Benediktsson alþingismaður, Kristján Oddsson bóndi, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor LBHÍ. Fundarstjóri: Þórir Páll Guðjónsson Rótarýklúbbi Borgarness.
Atvinnusýning. Kl. 12:30-16:00. Fyrirtæki og stofnanir af svæðinu kynna starfsemi sína fyrir gestum og gangandi.
Kjötsúpa til sölu í hádeginu. Nemendur Menntaskóla Borgarfjarðar sjá um veitingasöluna.
Kl. 14:00-16:00 Rjúkandi heiltar vöflur með rjóma, kaffi og aðrir drykkir í umsjá nemenda MB.
Skemmtiatriði: Ásta Marý Stefánsdóttir og Heiðmar Eyjólfsson syngja og leika á gítar kl. 13:30 og 15:30
Krílakórinn, börn á aldrinum 3-5 ára koma fram og syngja með sínu nefi undir stjórn Birnu Þorsteinsdóttur, kl. 14:30.