Ferðast um Grænland

miðvikudagur, 24. október 2018 18:30-19:45, Hotel Borgarnes Egilsgata 16 310 Borgarnes
Fundur var haldinn í Rkl. Borgarness á hefðbundnum stað og tíma. Þetta var fundur númer 3180 frá upphafi og sá 9. á starfsárinu. Gestir á fundi voru: Þóra Hrönn Njálsdóttir, Bjarni Johannesen, Gústaf Daníelsson og Sigurjón Pétursson. Mættir voru 13 félagar.
Forseti setti fund og bauð félaga og gesti velkomna. Undir liðnum kveðjur bað Sigurjón Péturson fyrir kveðjur til félaga frá Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar. Margrét lagði fé í Ingólfssjóð í tilefni heimferðar frá heimsókn sinni til Vilhjálms Egilssonar í Tyrklandi. Kristján lagði fé í Ingólfssjóð í tilefni góðrar heimferðar frá Belfast.
Forseti bauð fundargerð ritara lesa
fátt eitt heyrðist frá þeim pésa.
Ritari ærðist
og forseti mærðist 
sú gjörð bíður næsta funds að lesa.
Forseti greindi frá boði Rkl. Árbæjar um að koma á leiksýningu í Landnámssetri með þeim félögum 1. nóvember n.k.  Málsverður byrjar kl. 19 og sýning kl. 21 en þetta verður þá fyrsti fundur nóvembermánaðar og kemur í stað fundar þann 7. nóvember.
Aðalfundarefni kvöldsins var í höndum Sigurjóns Péturssonar rótarýfélaga í Rkl. Hafnarfjarðar og nefndist "Ferðast um Grænland". Sigurjón sagði frá sögu, stærð og íbúum Grænlands til þessa tíma. Fyrir um þremur árum fóru þau hjónin til Grænlands í góðum hópi. Ýmsir þjóðflokkar hafa búið í Grænlandi sem við nefnum eskimóa en elstu mannvistarleifar eru frá því um 4000 f. krist. Fiskveiðar eru undirstaða atvinnu en miklar vonir eru bundnar við jarðefnavinnslu og ýmsir málmar taldir leynast á Grænlandi. Grænland er hluti af Danska konungsríkinu en þeir eru á sjálfsstæðisstiginu líkt og Íslendingar á árunum 1918 til 1944. Reynt hefur verið að kaupa Grænland tvisvar. Sigurjón sýndi myndir frá för þeirra hjóna og gerðu félagar góðan róm að framsögu hans. Félagar þökkuðu Sigurjóni með lófataki.
Farið var með fjórpróf og fundi slitið um kl. 20.
Þannig ritað
Kristján Rafn ritari